Þórsarar misstu af úrslitaleiknum
Þórsarar töpuðu með minnsta mun fyrir Tindastól í undanúrslitum Lengjubikars karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í Stykkishólmi voru 82-81 eftir dramatískar lokamínútur.
View ArticleNýr skemmtistaður rís á rústum 800
Húsið sem hýsti 800Bar á Selfossi verður endurbyggt sem skemmtistaður en byggingarleyfi er í höfn að sögn Árna Steinarssonar, eiganda hússins.
View ArticleFyrri forkeppni Uppsveita-stjörnunnar í dag
Fjölmörg atriði eru nú þegar skráð til leiks í Uppsveitastjörnunni, hæfileikakeppni Upplits, en fyrri forkeppnin verður haldin í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi í dag kl. 15-17.
View ArticleÁrborg fær menningarsalinn
Sveitarfélagið Árborg mun eignast menningarsalinn í Hótel Selfoss sem hluta af uppgjöri við eigendur hótelsins. Eignaskiptasamngur mun að líkindum verða frágenginn innan skamms tíma.
View ArticleMandarínusalar í jólaskapi
Þær voru komnar í jólaskap stelpurnar í meistaraflokki Selfosskvenna í knattspyrnu sem ljósmyndari sunnlenska.is hitti á förnum vegi í dag.
View ArticleÓhapp hjá Herjólfi í Landeyjahöfn
Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs í Vestmannaeyjum, staðfestir á vef Eyjafrétta að Herjólfur hafi orðið fyrir óhappi í Landeyjahöfn.
View ArticleBílvelta við Skeiðavegamót
Bílvelta varð á mótum Suðurlandsvegar og Skeiðavegar í hádeginu í dag. Fjórir erlendir ferðamenn voru í bílnum og sluppu þeir án alvarlegra áverka.
View ArticleArndís Soffía leiðir Vinstri græna
Arndís Soffía Sigurðardóttir, lögfræðingur og varaþingmaður í Smáratúni í Fljótshlíð, verður í 1. sæti framboðslista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, en gengið var frá listanum á fundi kjördæmisráðs í dag.
View ArticleAfmælishátíð á Laugalandi
Íþróttafélagið Garpur fagnar tvítugsafmæli sínu í ár og af því tilefni mun félagið standa fyrir afmælishátíð í íþróttasalnum á Laugalandi í dag kl. 14.
View ArticleTrönuspjall í Svartakletti
Í dag er síðasti sýningardagur listmálarans Elfar Guðna Þórðarsonar á sýningunni Frá Djúpi til Dýrafjarðar í Gallerí Svartakletti á Stokkseyri.
View ArticleHarður árekstur í Þorlákshöfn
Harður árekstur varð við hringtorgið í Þorlákshöfn um þrjúleytið í dag. Minniháttar meiðsli urðu á fólki en báðir bílarnir eru stórskemmdir.
View ArticleRjúpnaskyttur gómaðar í þjóðgarðinum
Lögreglan á Selfossi gómaði tvær rjúpnaskyttur á friðuðu svæði í þjóðgarðinum á Þingvöllum um miðjan dag í dag. Lögreglan naut liðsinnis þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar við að finna skytturnar.
View ArticleBjörguðu rjúpnaskyttu úr sjálfheldu
Björgunarsveitir frá Álftaveri, Skaftártungu og Vík í Mýrdal voru kallaðar út síðdegis í dag til aðstoðar rjúpnaskyttu sem var í sjálfheldu í klettum norðan megin í Rjúpnafelli, austan Mýrdalsjökuls.
View ArticleBaldur leysir Herjólf af
Ef undanþága fæst mun ferjan Baldur leysa Herjólf af í siglingum á milli lands og Eyja á meðan slipptöku Herjólfs stendur. Önnur skrúfa Herjólfs laskaðist þegar skipið tók niðri í hafnargarðinum í...
View ArticleLoka þarf Kumbaravogi ef fram fer sem horfir
Í nýlegri úttekt Landlæknisembættisins á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri kemur fram að aðstæður þar séu ekki viðunandi fyrir veikt fólk.
View ArticleEineltisfræðsla í Hvolsskóla
Í dag kl. 17.30 – 19.00 verður flutt fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála í sal Hvolsskóla á Hvolsvelli.
View ArticleHafa miklar áhyggjur af löggæslumálum
Bæjarráð Árborgar ítrekar áhyggjur sínar af löggæslu málum í Árnessýslu en Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður, og Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn, kynntu stöðu mála á síðasta bæjarráðsfundi.
View ArticleStærsti humar sem veiðst hefur við Ísland
Jón á Hofi landaði stærsta humri sem veiðst og mælst hefur hér við land hjá Ramma í Þorlákshöfn síðastliðinn fimmtudag. Humarinn var veiddur í Selvoginum.
View ArticleEkki ljóst hvar Margrét fer fram
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar í Suðurkjördæmi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í framboð fyrir Dögun í þingkosningunum á næsta ári.
View ArticleÖlvaður í innanbæjarakstri
Lögreglan stöðvaði ölvaðan ökumann um kl. 19:40 í kvöld á Eyravegi á Selfossi. Aksturslag mannsins varð til þess að lögreglan stöðvaði hann en maðurinn svínaði fyrir annan ökumann.
View Article