Skeiðamaður bjó til besta kaffið
Jan-Fredrik Winter, frá Borgarkoti á Skeiðum, tryggði sér um helgina Íslandsmeistaratitilinn í kaffigerð 2012.
View ArticleLionsmenn pakka jólanamminu
Árleg fjáröflun Lionsklúbbsins Suðra í Vík hófst á klúbbfundi í gærkvöldi með því að félagarnir pökkuðu sælgæti sem selt verður fyrir jólin í Mýrdal og undir Austur Eyjafjöllum.
View ArticleMarín valin glímukona ársins
Marín Laufey Davíðsdóttir, Héraðssambandinu Skarphéðni var valin glímukona ársins 2011 af stjórn Glímusambandsins á stjórnarfundi í gær.
View ArticleGréta Svala og Valgerður kvaddar
Þær Valgerður Fried, læknaritari, og Gréta Svala Bjarnadóttir, ræstitæknir, létu nýlega af störfum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
View ArticleHeilsugæslunni á Hellu lokað
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur ákveðið að sameina heilsugæsluþjónustu í Rangárþingi og loka heilsugæslunni á Hellu.
View ArticleHvergerðingar skreyta af kappi
Blásið hefur verið til jólaljósa-skreytingakeppni í Hveragerði. Best skreyttu heimilin og fyrirtækin verða verðlaunuð en verðlaunin eru í veglegri kantinum.
View ArticleVirkjun hefði góð áhrif á umhverfið
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar andmælir því að Hagavatnsvirkjun verði sett í biðflokk í rammaáætlun og mælist eindregið til þess að virkjunin verði í staðinn færð upp í orkunýtingarflokk.
View ArticleSigurður dýralæknir selst best
Fyrra bindi ævisögu Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis er mest selda bókin í Sunnlenska bókakaffinu í síðustu viku.
View ArticleKrefjast þess að staðið sé við samning
Landgræðslan hefur sent Skeiða- og Gnúpverjahreppi bréf þar sem þess er krafist að staðið verði við samning frá 1999 um að hreppurinn haldi við girðingu og kosti lögbundnar smalanir á landgræðslusvæði...
View ArticleMótmæla harðlega lokun á Hellu
Sveitarstjórnir Rangárþings ytra og Ásahrepps mótmæla harðlega yfirlýsingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) um að loka eigi heilsugæslustöðinni á Hellu.
View ArticleHamar steinlá í Njarðvík
Kvennalið Hamars náði sér ekki á strik þegar liðið heimsótti Njarðvík í kvöld í Iceland Express deildinni í körfubolta. Njarðvíkingar sigruðu 77-53.
View ArticleÍskalt á Þingvöllum
Klukkan ellefu í kvöld var -21°C frost á Þingvöllum og hvergi á landinu var kaldara.
View ArticleRáðstefna um eldgosavá
Rótarýklúbbur Rangæinga boðar til ráðstefnu í Gunnarsholti í dag þar sem rædd verður eldgosavá í Rangárþingi, forvarnir, afleiðingar og framtíðarsýn.
View ArticleMinjasafnið í Gröf liggur undir skemmdum
Áhugi er fyrir því að auka veg og virðingu Minjasafnsins í Gröf í Hrunamannahreppi en safnið er í ófullnægjandi húsnæði og líður fyrir fjárskort.
View ArticleVarað við ófullgerðum vegamótum
Vegfarendur á Suðurlandsvegi hafa tekið eftir því að vegamótin á nýja veginum eru nokkuð öðruvísi en þeir eiga að venjast.
View ArticleEnglar undir stiganum
Í dag kl 18 verður opnuð ný sýning í Gallerí undir stiganum, sýningarrými í Bæjarbókasafni Ölfuss.
View ArticleSamkomulag um varnargarða
Landgræðslan og Vegagerðin hafa gert samkomulag um skiptingu ábyrgðar og kostnaðar vegna varnargarða og annarra varnarmannvirkja í Markarfljóti, Krossá og ám undir Eyjafjöllum.
View ArticleÁ fornum slóðum og nýjum í Bókakaffinu
Í kvöld kl. 20 munu lesa úr verkum sínum í Sunnlenska bókakaffinu þeir Hallgrímur Helgason, Jónas Kristjánsson, Ari Trausti Guðmundsson og Sindri Freysson.
View ArticleUpplestur og piparkökur á Listasafninu
Bókasafnið í Hveragerði og Listasafn Árnesinga viðhalda þeirri hefð að bjóða upp á lestur úr nýjum bókum í Listasafninu 1. desember með tónlistarívafi, kertaljósum og piparkökum.
View ArticleBjörgvin G: Verknámshús FSu og menntun fanga á fjárlög
Í gær samþykkti Alþingi eftir 2. umræðu fjárlaga fyrsta framlag af þremur til Hamars, nýs verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurlands.
View Article