Banaslys í Skaftárhreppi
Banaslys varð á Suðurlandsvegi við Skaftártunguveg, austan Kúðafljóts. Þrjú erlend ungmenni á þrítugsaldri voru í bíl sem valt útaf veginum.
View ArticleByggingarþjónustan bauð lægst í útiklefa
Byggingarþjónustan ehf í Reykjavík bauð lægst í byggingu útiklefa við íþróttamiðstöðina á Hvolsvelli en tilboð voru opnuð í síðustu viku.
View ArticleHrikaleg spenna í lokin
Grindavík hafði betur í fyrsta leiknum gegn Þór Þorlákshöfn í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla í körfubolta. Lokatölur í Grindavík voru 93-89.
View ArticleSene í Hamar
Hamarsmenn hafa fengið Senegalann Sene Abdalha lánaðan frá Selfyssingum og mun hann leika með Hvergerðingum í 2. deildinni í sumar.
View ArticleFundu útigangsfé á Biskupstungaafrétti
Sex útigangskindur fundust á Biskupstungnaafrétti um helgina. Það var ferðahópur sem rakst á kindurnar og fékk aðstoð úr byggð við að smala þeim og koma til byggða.
View ArticleBíllinn fór sex eða sjö veltur
Rekja má tildrög umferðarslyss nærri Kirkjubæjarklaustri í gær, sem kostaði einn lífið, til þess að ökumaðurinn var að teygja sig eftir einhverju sem lá í gólfinu.
View ArticleÖll tilboðin undir kostnaðaráætlun
Valdimar Bjarnason á Selfossi bauð lægst í 2. áfanga stúkubyggingar við Selfossvöll, tæpar 70 milljónir króna.
View ArticleGröfutækni bauð lægst í yfirborðsfrágang
Gröfutækni ehf á Flúðum átti lægsta tilboðið í vinnu við yfirborðsfrágang á hluta íþróttavallarsvæðisins við Engjaveg á Selfossi.
View ArticlePróflaus stútur undir stýri
Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði sextán ökumenn fyrir of hraðan akstur í síðustu viku og einn ökumaður sem reyndist ölvaður og próflaus var tekinn úr umferð.
View ArticleUmhverfisverðlaunin til grunnskólans
Grunnskólinn í Hveragerði hlaut Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar þetta árið en verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Sumardaginn fyrsta.
View ArticleSelfyssingar komnir í sumarfrí
Handknattleikslið Selfoss er komið í sumarfrí eftir naumt tap í oddaleik gegn Aftureldingu í umspili um sæti í efstu deild á næsta tímabili. Lokatölur að Varmá voru 23-21.
View ArticleStórtjón fyrir litla deild
Tveimur rafgeymum hefur verið stolið úr beltagröfu sem stendur við motocrossbrautina í Hrísmýri á Selfossi. Þjófnaðurinn átti sér líklega stað aðfaranótt þriðjudags.
View Article250 ár frá fæðingu Sveins Pálssonar - Hátíð í Vík
Í dag er 250 ára fæðingarafmæli Sveins Pálssonar, náttúrufræðings, læknis og ferðagarps. Sveinn er tvímælalaust einn af merkustu sonum Víkur í Mýrdal.
View ArticleFjölbreytt dagskrá í jarðvangsviku
Jarðvangsvika Kötlu Geopark stendur yfir þessa dagana. Þetta er í annað skipti sem vikan er haldin en markmið er að bjóða upp á spennandi viðburði sem endurspegla mannlífið innan svæðisins.
View ArticleHjalti sýnir á Kaffi Klassík
Verk eftir Hjalta Vignis, ljósmyndanema frá Þorlákshöfn, er nú til sýnis á Kaffi Klassík í Kringlunni í Reykjavík.
View ArticleNáttúran.is fékk Kuðunginn
Umhverfisvefurinn Náttúran.is hlaut í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum.
View ArticleSkora á Alþingi að hafna breytingum á rammaáætlun
Þjórsársveitir skora á Alþingi að afgreiða tillögu um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða samkvæmt skýrslu verkefnisstjórnar um gerð rammaáætlunar og hafna framkominni þingsályktunartillögu um...
View ArticleSævar er ungur vísindamaður ársins
Ungur vísindamaður ársins 2012 á Landspítala er Selfyssingurinn Sævar Ingþórsson, líffræðingur og doktorsnemi.
View ArticleSelfosskonum skellt á heimavelli
Kvennalið Selfoss steinlá þegar liðið tók á móti FH í Lengjubikarnum í knattspyrnu í kvöld. Gestirnir sigruðu 1-5.
View ArticleHvetja neytendur til að sniðganga verslanir
Aðalfundur Verslunarmannafélags Suðurlands skorar á verslunarmenn á svæðinu að hafa verslanir lokaðar þann 1. maí. Neytendur eru hvattir til að sniðganga þær verslanir sem opnar verða.
View Article