Quantcast
Channel: Sunnlenska.is
Browsing all 14634 articles
Browse latest View live

Öllum tilboðum í Herjólf hafnað

Vegagerðin hefur hafnað öllum tilboðum í rekstur Herjólfs og óskað eftir því að Eimskip reki skipið áfram í mánuð til viðbótar.

View Article


Yfir níutíu plöntur fundust í húsleitinni

Níutíu og tvær kannabisplöntur fundust í húsleit lögreglunnar í íbúðarhúsi á Selfossi síðdegis í gær.

View Article


Ánamaðkaræktun á Sólheimum

Garðyrkjustöðvar Sólheima, Ölur og Sunna, fengu á dögunum afhenta ánamaðka frá Guðmundi Sigurðssyni sem hefur stundað ánamaðkaræktun í nokkur ár í Vogum á Vatnsleysuströnd.

View Article

Mega selja vöfflurnar

Tíundi bekkur Vallaskóla á Selfossi heldur flóamarkað í Tryggvaskála í dag en markaðurinn komst í uppnám í gær þegar Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bannaði sölu á heimabökuðum kökum.

View Article

Ferðumst örugglega um páskana

Framundan er ein stærsta ferðahelgi vetrarins og má reikna með að þúsundir fjölskyldna leggi land undir fót.

View Article


Harðkjarna hrútavinir í kútmagaveislu

Öldungaráð Hrútavinafélagsins Örvars á Suðurlandi hélt kútmagaveislu í Menningarverstöðinni á Stokkseyri um síðustu helgi.

View Article

Milljónamiði í Bjarnabúð

Einn vinningshafi vann íslenska bónusvinninginn í Víkingalottóinu í gærkvöldi og fékk rúmar 5,2 milljónir króna í sinn hlut. Vinningsmiðinn var seldur í Bjarnabúð í Reykholti.

View Article

Ljóð í pottunum um páskana

Sundlaugar Árborgar á Selfossi og Stokkeyri í samstarfi við bókasafnið bjóða gestum upp á áhugaverð ljóð í heitu pottunum um leið og slakað er á yfir hátíðarnar.

View Article


Tap í fyrsta Lengjubikarleik

Selfosskonur töpuðu sínum fyrsta leik í Lengjubikarnum í knattspyrnu í gærkvöldi þegar liðið sótti Aftureldingu heim.

View Article


Þórsarar sigruðu á lokasprettinum - Mæta KR í undanúrslitum

Þórsarar eru komnir í undanúrslit Iceland Express-deildar karla í körfubolta eftir magnaðan sigur á Snæfelli, 72-65, í oddaleik í Þorlákshöfn í kvöld.

View Article

Yarisinn fundinn

Toyota Yaris bifreiðin sem lögreglan á Selfossi hefur lýst eftir frá því í febrúar fannst í gær í Norðlingaholtinu í Reykjavík.

View Article

Jola sýnir á Sólheimum

Sýningin "List-Saumur" opnaði í Ingustofu á Sólheimum í síðustu viku. Fjöldi listunnenda kom á opnun sýningarinnar og stolt listakonan, Jolanta María Zawadzka tók lengi við hamingjuóskum.

View Article

Vill virkjanir í Þjórsá

Bæjarráð Árborgar vill að Alþingi setji Hvamms- og Holtavirkjanir í Þjórsá í nýtingarflokk í Rammaáætlun um nýtingu og vernd náttúrusvæða.

View Article


Fljótlega ráðist í endurbyggingu á skemmunni

Kostnaður við endurbyggingu skemmu rörafyrirtækisins Sets á Selfossi sem varð eldi að bráð á dögunum verður vel undir 20 milljónum króna, að sögn Bergsteins Einarssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

View Article

Tjarnarbrúin tengir saman byggðir

Í dag, föstudaginn langa, var vígð brú milli byggða sem tengir saman reiðleiðir úr Tjarnarbyggð við hesthúsabyggðina á Eyrarbakka.

View Article


RÚV gefur út myndina um Reyni Pétur

Fyrir skömmu var ákveðið að Ríkisútvarpði gefi út kvikmyndina um Reyni Pétur Ingvarsson á Sólheimum, "Reynir Pétur gengur betur", nú í vor.

View Article

Ekkert pláss fyrir áhöld til íþróttakennslu

Skólanefnd Gnúpverjahrepps hefur ítrekað ósk sína eftir bættri aðstöðu fyrir íþróttakennslu og íþróttaáhöld í félagsheimilinu Árnesi. Ekki er hægt að kaupa áhöld til íþróttakennslu vegna geymsluleysis.

View Article


Stóðhestaveisla í Ölfushöllinni

Stóðhestarnir Spuni frá Vesturkoti og Álfur frá Selfossi verða meðal helstu stórstjarna í Stóðhestaveislu í Ölfushöllinni í kvöld en þar hefur öllum helstu gæðingum landsins verið stefnt saman.

View Article

Harður árekstur á Austurveginum

Hörð aftanákeyrsla varð á Austurvegi til móts við Hörðuvelli á Selfossi laust eftir klukkan þrjú í dag. Ökumaður annars bílsins var fluttur til skoðunar á slysadeild.

View Article

Hátt í hundrað eignir á sölu

Lítil hreyfing hefur verið á fasteignamarkaði í Þorlákshöfn undanfarið. Guðbjörg Heimisdóttir, fasteignasali hjá Fasteignasölu Suðurlands, segist vera með á milli 60 og 70 eignir á skrá hjá sér sem...

View Article
Browsing all 14634 articles
Browse latest View live