Bakvaktir færðar á Selfoss
Urgur er í íbúum Rangárvallasýslu vegna breytinga á heilsugæsluþjónustu en bakvakt færist frá Hellu og Hvolsvelli eftir kl. 16 á daginn og um helgar. Íbúar þurfa þá að sækja læknisþjónustu á Selfoss.
View ArticleMóri hrekkir í leikhúsinu
Óútskýranlegir hlutir hafa gerst á æfingatímabilinu hjá Leikfélagi Selfoss sem frumsýnir í kvöld spunasýninguna Hið dularfulla hvarf Hollvinafélagsins í leikhúsinu við Sigtún.
View ArticleEyjalögin óma á Suðurlandi
Söng og skemmtisveitin Obbó-síí frá Vestmannaeyjum er loksins á ferðinni á fastalandinu og heldur Eyjakvöld á tveimur stöðum á Suðurlandi um helgina.
View Article„Svekktur en horfi á björtu hliðarnar“
Handknattleiksmaðurinn Þórir Ólafsson fékk að vita það síðasta mánudag að Tus-N-Lübbecke ætlaði ekki að framlengja samning hans sem rennur út í vor.
View ArticleBikargleði í blómabænum
Hamarskonur fögnuðu vel á miðvikudagskvöld þegar þær tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express-deild kvenna.
View ArticleMæðraKompaníið vex og dafnar
MæðraKompaní er félagsskapur ungbarnamæðra sem hittast vikulega á Selfossi. Hópurinn hefur sprengt utan af sér Kaffi Líf og fengið inni í ungmennahúsinu, Pakkhúsinu.
View ArticleÚtgáfuhóf í Iðu
Bókaútgáfan Sæmundur minnir á útgáfuhóf í Iðu í Lækjargötu kl. 14-16 á laugardag. Þar verður fagnað útkomu bókarinnar Góða ferð, handbók um útivist.
View ArticleÁ ekki við um alla sýsluna
Í sambandi við frétt um að bakvakt heilsugæslu á Hellu og Hvolsvelli færist á Selfoss eftir kl. 16 er rétt að taka fram að niðurskurðurinn á ekki við um alla Rangárvallasýslu.
View ArticleBikarinn á loft í Þorlákshöfn
Þórsarar fengu í kvöld afhentan bikarinn fyrir sigur í 1. deild karla í körfubolta. Þór lagði Skallagrím, 85-79 í Þorlákshöfn.
View ArticleÖruggt hjá FSu
FSu vann öruggan sigur á Laugdælum þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfubolta í gærkvöldi, 104-88.
View ArticleSelfoss U lagði Víking
Ungmennalið Selfoss vann góðan sigur á Víkingum í 1. deild karla í handbolta í gærkvöldi, 22-20.
View ArticleLeita sleðamanns við Hrafntinnusker
Tveir vélsleðamenn villtust í Hrafntinnuskeri nærri Landmannalaugum í hádeginu í dag. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að leita að öðrum þeirra.
View Article„Vonandi kem ég aftur”
Eric Palm sem hefur verið besti leikmaður Þórsara á tímabilinu sat á bekknum í gær og fylgdist með félögum sínum leggja Skallagrím.
View ArticleSleðamaðurinn fundinn
Vélsleðamaðurinn sem björgunarsveitarmenn hafa leitað að við Hrafntinnusker í dag er fundinn heill á húfi.
View ArticleFSu úr leik
Lið Fjölbrautaskóla Suðurlands féll úr keppni í Gettu betur í kvöld eftir viðureign gegn Menntaskólanum í Reykjavík.
View ArticleBrenna meðan beðið er
"Við bíðum þess að fá niðurstöður úr mælingum," segir Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri í Skaftárhreppi.
View ArticleSækja skíðamenn á jökul
Björgunarsveitarmenn úr Kyndli á Kirkjubæjarklaustri eru nú á leið á Öræfajökul til að aðstoða þrjá gönguskíðamenn sem þar eru staddir.
View ArticleHamarsmenn fallnir í 1. deild
Karlalið Hamars féll úr Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Snæfelli í Stykkishólmi, 76-64.
View ArticleSkíðamenn komnir til byggða
Skíðagöngumennirnir þrír, sem festust uppi á Snæbreið við Öræfajökul, komu til byggða um klukkan sex í morgun.
View ArticleÞrír grunaðir um nauðgun
Að sögn lögreglunnar á Selfossi kom stúlka á lögreglustöðina klukkan 8 á sunnudagsmorgun og kærði nauðgun, sem hefði átt sér stað á hóteli í bænum skömmu áður.
View Article