„Viðtökurnar hafa verið frábærar”
Berglind Rós Magnúsdóttir, fatahönnuður hjá Beroma, er byrjuð að selja barnaföt og fleiri vörur í versluninni Hosiló á Selfossi.
View ArticleLeitað að Þingvallamyndum
"Myndin af Þingvöllum" er heiti næstu sýningar Listasafns Árnesinga sem opnuð verður 15. maí nk.
View ArticleÞjófapar á ferðinni á Selfossi
Á föstudag hafði lögregla afskipti af pari sem grunað var um að hafa stolið nýjum farsíma úr verslun M&M að Eyravegi 2 á Selfossi.
View ArticleKeyrði í gegnum girðingu og út í skurð
Ökumaður var handtekinn á Laugarvatni um helgina eftir að hann ók ölvaður í gegnum girðingu við nýbyggingu gufubaðsins á Laugarvatni og hafnaði þar ofan í skurði.
View ArticleKnapi slasaðist á fæti
Kona slasaðist minniháttar þegar hestur sem hún reið fór utan í bifreið sem ekið var fram með hestinum í hesthúsahverfinu á Selfossi í síðustu viku.
View ArticleAndri Már sigraði á Hellu
Heimamaðurinn Andri Már Óskarsson, GHR, sigraði án forgjafar á 1. maí móti Golfklúbbsins Hellu og Hole in One á Strandarvelli í gær.
View ArticleEggert ráðinn í Kötlusetur
Eggert Sólberg Jónsson, þjóðfræðingur, hefur verið ráðinn forstöðumaður Kötluseturs og hefur hann þegar tekið til starfa.
View ArticleTvö dýpkunarskip við Landeyjahöfn
Dýpkunarskipið Perla er komið til Landeyjahafnar þar sem skipið verður notað ásamt dæluskipinu Skandiu við dýpkun hafnarinnar næstu daga.
View ArticleMiðasala hafin á Kallakvöld Sleipnis
Kallakvöld Hestamannafélagsins Sleipnis verður haldið í Þingborg í Flóahreppi nk. föstudag, 6. maí kl. 20:00.
View ArticleSjóvarnir bættar á Bakkanum
Siglingastofnun hefur óskað eftir tilboðum í byggingu 170 m langs sjóvarnargarðs við Eyrarbakka og á verkinu að vera lokið í ágúst í sumar.
View ArticleÁ 181 km hraða í Ölfusinu
Eftir hádegi í dag stöðvaði lögreglan á Selfossi ökumann bifhjóls á Suðurlandsvegi í Ölfusi en hann hafði ekið á 181 km/klst hraða framhjá radarmæli lögreglunnar.
View ArticleGnúpverjar úr leik
Ungmennafélag Gnúpverja féll úr leik í Valitorbikar karla í knattspyrnu í kvöld þegar lið þeirra tapaði 3-0 fyrir Aftureldingu á útivelli.
View ArticleSelfyssingar Íslandsmeistarar
Lið Selfoss varð Íslandsmeistari A-liða í 4. flokki kvenna í handbolta sl. laugardag. Selfoss lagði Fylki 21-15 í úrslitaleik.
View ArticleHöfnin við það að opnast
Gott útlit er fyrir að nægjanlegt dýpi náist í Landeyjahöfn í dag til þess að ferjusiglingar til hafnarinnar geti hafist að nýju.
View ArticleÁrborg spáð falli
Fyrirliðar og þjálfarar liðanna í 2. deild karla í knattspyrnu spá því að Árborg fari beint aftur niður í 3. deild.
View ArticleSparisjóðurinn lokar í Hveragerði
Afgreiðslu Sparisjóðsins á Suðurlandi í Sunnumörk í Hveragerði var lokað nú um mánaðarmótin.
View ArticleRottweilertíkin numin á brott
Lögreglan á Selfossi rannsakar hvarf á rottweilertík sem numin var á brott af hundahótelinu á Arnarstöðum í Flóa í nótt. Tíkin beit konu í Hveragerði í mars sl.
View ArticleMeiðyrði á báða bóga
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær Benediktu Haukdal til að greiða Eggerti Haukdal 300 þúsund króna bætur fyrir meiðyrði og Eggert var dæmdur til að greiða Benediktu sömu upphæð.
View ArticleLeikskólar á Selfossi að fyllast
Átta pláss eru laus á leikskólunum á Selfossi í haust ef börn á biðlista skila sér í skólana. Útlit er fyrir að fjölga þurfi starfsfólki við skólana í haust.
View Article3,6 tonnum af áburði stolið
Í nótt var sex stórum áburðarsekkjum stolið af túni við Oddaveg í Rangárvallasýslu.
View Article