Glæsileg Nettóverslun opnuð
Tíunda Nettóverslunin á landinu opnaði kl. 10 í morgun að Austurvegi 42 á Selfossi. Viðskiptavinirnir biðu í röð og streymdu svo inn í búðina.
View ArticleUm 100 ungmenni á ráðstefnu
Ráðstefnan „Ungt fólk og lýðræði“ hófst á Hvolsvelli í morgun en um 100 manns víðs vegar af að landinu, á aldrinum 16-25 ára sækja ráðstefnuna.
View ArticleÞrír nýir starfsmenn hjá Hveragerðisbæ
Þrír nýir starfsmenn hafa tekið til starfa hjá Hveragerðisbæ. Ásta Camilla, landslagsarkitekt, Elínborg, viðburðastjórnandi og Guðrún Rósa, skrúðgarðyrkjufræðingur.
View ArticleRáðherra á Selfossi
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, verður gestur á opnum fundi Samfylkingarinnar að Eyravegi 15 á Selfossi á laugardagsmorgun, 31. mars kl. 11.
View ArticleTíu Selfyssingar náðu í stig
Afmælisbarnið Ólafur Karl Finsen tryggði Selfossi eitt stig þegar hann jafnaði metin í lokin fyrir liðið gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjubikarnum í knattspyrnu í kvöld.
View ArticleSelfyssingar í úrslitakeppnina - Skelltu Víkingum
Gott gengi Selfyssinga heldur áfram í 1. deild karla í handbolta en liðið lagði Víking R. á útivelli í kvöld, 25-29, og tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppninni.
View ArticleEndaspretturinn var Þórsara
Þór tók á móti Snæfelli í kvöld í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta. Eftir magnaðan lokakafla höfðu Þórsarar 82-77 sigur.
View ArticleEva Dögg Ungfrú Suðurland 2012
Eva Dögg Davíðsdóttir, 18 ára Eyjamær, var valin Ungfrú Suðurland 2012 á Fegurðarsamkeppni Suðurlands sem fram fór á Hótel Selfossi í kvöld.
View ArticleArtemisia fyrsta konan til að sigra
Úrslitin réðust í Meistaradeildinni í hestaíþróttum í Ölfushöllinni í kvöld. Artemisia Bertus varð fjórða í fimmgangskeppninni í kvöld og það dugði henni til sigurs.
View Article„Skemmtilegt kvöld“
„Mér líður bara mjög vel, þetta var rosalega skemmtilegt kvöld. Ég bjóst ekki við að þetta yrði svona gaman og ég er mjög ánægð,“ sagði Ungfrú Suðurland, Eva Dögg Davíðsdóttir, í samtali við...
View Article„Kemur mjög á óvart“
Metþátttaka var í kosningunni um netstúlku sunnlenska.is en 4.466 atkvæði voru greidd. Fjórum atkvæðum munaði á Bylgju Sif Jónsdóttur og stúlkunni sem varð í 2. sæti.
View ArticleHandboltadagur á Selfossi
Það verður mikið um dýrðir á Selfossi í dag þegar handboltadeild Umf. Selfoss blæs til stjörnuleiks í Vallaskóla í dag og styrktardansleiks í Hvítahúsinu í kvöld.
View ArticleÖruggt hjá Árborg - Ægir tapaði
Árborg vann öruggan sigur á Hvíta riddaranum í C-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag. Ægismenn töpuðu hins vegar gegn Álftanesi.
View ArticleRetRoBot sigraði Músiktilraunir 2012
Hljómsveitin RetRoBot frá Selfossi sigraði í Músiktilraunum 2012 en úrslitakvöldið fór fram í Austurbæ í Reykjavík í kvöld. Tíu sveitir kepptu til úrslita.
View ArticleHelgi skoraði eina markið
Helgi Ármannsson skoraði sigurmark KFR þegar liðið lagði nágranna sína í Hamri í B-deild Lengjubikarsins í knattspyrnu á Selfossvelli í dag. KFR sigraði 1-0.
View ArticleRóleg nótt hjá lögreglu
Nóttin var tíðindalítil hjá lögreglunni á Selfossi en einn ökumaður var stöðvaður undir áhrifum áfengis.
View ArticleFyrrum stjarna úr enska boltanum til reynslu á Selfossi
Selfyssingar halda áfram að bæta við sig leikmönnum fyrir komandi tímabil í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Heimildir sunnlenska.is herma að enginn annar en markamaskínan Robbie Fowler hafi komið til...
View ArticleSara og Díva sterkastar allra
Það var mikið um dýrðir og glæsihesta á skautasvellinu í Laugardalnum í gærkvöld. Ráslistann prýddu Íslands-, Landsmóts- og heimsmeistarar síðasta árs, sem og sigurvegarar fyrri Ístölta.
View ArticleSebrasvanur í Mýrdalnum
Sést hefur til sebrasvans (l. zebra cygnus) í Mýrdalnum um helgina. Til hans sást austan við Vík í morgun en Jónas Erlendsson í Fagradal náði mynd af fuglinum í gær.
View ArticleHjólabátaútgerð gæti hafist aftur
Verið er að skoða möguleika á að hefja fiskveiðar frá Vík í Mýrdal á ný en þær hafa legið niðri um margra ára skeið.
View Article