Sorpsstöð Rangárvallasýslu fær áminningu
Umhverfisstofnun hefur áminnt Sorpsstöð Rangárvallasýslu og krafist úrbóta vegna fráviks sem kom í ljós við eftirlit. Árið 2010 voru urðuð 1.630 tonn af sláturúrgangi á Strönd en þar er einungis...
View ArticleSvekkjandi jafntefli hjá Hamri
Hamar og Augnablik skildu jöfn, 2-2, í B-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í kvöld. Leikið var í Kórnum í Kópavogi.
View ArticleViltu teikna? Katrín Briem leiðbeinir
Í dag kl. 14-16 mun Katrín Briem myndlistarmaður og myndmenntakennari til margra ára leiðbeina gestum í teikningu á sýningunni Ásjóna í Listasafni Árnesinga.
View ArticleSelfoss með tvenn bronsverðlaun
Úrslit í fjölþraut Íslandsmótsins í hópfimleikum fór fram í Ásgarði í Garðabæ í gær. Kvennalið Selfoss HM1 átti mjög góða keppni og vann tvenn bronsverðlaun.
View ArticleJafntefli í toppslag
Árborg og Þróttur Vogum skildu jöfn, 1-1, í C-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag.
View ArticleBenedikt ráðinn íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Benedikt Benediktsson hefur verið ráðinn íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í Rangárþingi eystra en það eru auk sveitarfélagsins Knattspyrnufélag Rangæinga og Íþróttafélagið Dímon sem ráða hann í starfið.
View ArticleÞorsteinn Björn íþróttamaður ársins
Þorsteinn Björn Einarsson, frjálsíþróttakappi úr Umf. Kötlu, var útnefndur íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Skaftfellinga árið 2012 á 42. sambandsþingi USVS sem haldið var á Hótel Laka á dögunum.
View ArticleBilun í hitaveitunni í Þorlákshöfn
Heitavatnslaust er í Þorlákshöfn. Unnið er að því að finna bilunina. Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær vatnið kemst á að nýju.
View ArticleMarín varði Freyjumenið
Marín Laufey Davíðsdóttir, Umf. Samhygð, varði í dag titilinn Glímudrottning Íslands þegar hún sigraði í glímunni um Freyjumenið á Íslandsglímunni sem fram fór á Ísafirði.
View ArticleHestafjör á Selfossi
Hestafjör 2012 verður haldið í reiðhöll Sleipnis að Brávöllum Selfossi í dag og hefst hátíðin kl. 14:00.
View ArticleÍsland sungið á Hvolsvelli og í Vík
Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra er um þessar mundir að vinna að stóru verkefni. Hann stefnir að því að ná 30.000 manns til að syngja viðlagið við lagið Ísland sem hann hefur verið að...
View ArticleHver brenndi konu í Grænsdal
Erlend ferðakona var flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur í morgun eftir að henni skrikaði fótur svo hún lenti ofan í hver í Grænsdal fyrir innan Hveragerði.
View ArticleGekk berserksgang við Seljavallalaug
Karlmaður á tvítugsaldri gekk berserksgang við Seljavallalaug undir Eyjafjöllum í morgun. Maðurinn, sem er góðkunningi lögreglu, braut rúður í bifreið sem stóð skammt frá lauginni.
View ArticleHeitavatnslaust við ströndina
Vegna viðgerða á stofnæð verður heita vatnið tekið af kl. 10:00, mánudaginn 16. apríl, á Eyrarbakka og Stokkseyri.
View ArticleÞórsarar með pálmann í höndunum
Þór Þorlákshöfn tók 2-1 forystu í einvíginu við KR í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í körfubolta í kvöld. Þór vann 86-100 á útivelli og þurfa nú einn sigur til viðbótar til að slá...
View ArticleÞórir bikarmeistari og besti leikmaðurinn
Selfyssingurinn Þórir Ólafsson var valinn besti leikmaður fjögurra liða úrslita pólsku bikarkeppninnar í handbolta eftir að lið hans, Vive Kielce, sigraði Wisla Plock, 36-27, í úrslitaleik keppninnar í...
View ArticleHandteknar fyrir stórfellt búðarhnupl
Þrjár konur voru handteknar skömmu eftir hádegi á föstudag vegna gruns um þjófnað í versluninni Galleri Ozone við Austurveg á Selfossi.
View ArticleKafarinn við góða heilsu
Kafarinn sem lenti í óhappi í Silfru á Þingvöllum í síðustu viku er við góða heilsu. Köfunarbúnaður konunnar til til skoðunar hjá sérfræðingi.
View ArticleFróðleg lítil bók um latínu á Íslandi
Suðurlandsútgáfan hefur nýlega sent frá sér bókina Nota Bene – latína á Íslandi eftir Jón R. Hjálmarsson fyrrverandi skólastjóra í Skógum og fræðslustjóra á Selfossi.
View ArticleOfbeit hrossa meira áberandi en áður
Landgræðslan segir að beitarhólf hrossa á Suðurlandi liggi víða undir skemmdum vegna ofbeitar.
View Article