Þungu blómakeri stolið
Aðfaranótt sunnudags var brúnleitu sveppalaga blómakeri stolið úr innkeyrslu við Hjarðarholt 8 á Selfossi.
View ArticleÞór tapaði í framlengingu
Þór og Snæfell höfðu sætaskipti í Iceland Express-deild karla í kvöld. Snæfell lagði Þór í Hólminum í framlengdum leik 93-86 og fór upp í 5. sætið. Snæfell hefur betur í innbyrðis leikjum liðanna.
View ArticleFært á hjólastól yfir Markarfljót
Áhugahópurinn Vinir Þórsmerkur hefur fengið heimild í skipulagsnefnd Rangárþings til að vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi vegna byggingar göngubrúar yfir Markarfljót á móts við Húsadal í Þórsmörk.
View ArticleArtemisia og Óskar sigurvegarar kvöldsins
Artemisia Bertus á Óskari frá Blesastöðum 1a, sigraði í fjórgangi á fyrsta móti vetrarins í Meistaradeildinni í hestaíþróttum sem fram fór í Ölfushöllinni í gærkvöldi.
View ArticleÞór undirstrikaði styrkleika sinn
Þór Davíðsson, Umf. Selfoss, náði góðum árangri á Afmælismóti Júdósambands Íslands sem fram fór um síðustu helgi. Þór sigraði í -90 kg flokki.
View ArticleSeinkun á Suðurlandsslag
Selfoss og ÍBV eigast við í 1. deild karla í handbolta á Selfossi á morgun, laugardag.
View ArticleFíkniefni fundust í Herjólfi
Lögreglumenn fundu um 150 - 200 grömm af maríhúana í farangursgeymslu bíls í Herjólfi þegar hann var að fara frá Þorlákshöfn um hálffjögur í dag.
View ArticleTveir stigu fast á pinnann
Tveir voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í kvöld. Annar þeirra var á 136 km hraða í Eldhrauninu.
View ArticleDauft yfir nágrannaslagnum
FSu og Hamar áttust við í 1. deild karla í körfubolta í Iðu á Selfossi í kvöld. Hamar sigraði 68-85 í virkilega bragðdaufum leik.
View ArticleKláruðu vikuna með knúsi
Árlegri góðgerðaviku í félagsmiðstöðinni Zelsiuz á Selfossi lauk í gær en þá buðu unglingar upp á kökur og knús við verslun Bónuss og Hagkaupa.
View ArticleDýrt ljósleiðarakerfi
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur verið kynnt úttekt verkfræðistofunnar Eflu hf á forhönnun ljósleiðarakerfis og kostnaðarmati við uppsetningu.
View ArticleSogn hagkvæmari kostur en Bitra
Í athugun er að flytja starfsemi fangelsisins að Bitru í Flóahreppi yfir á Sogn í Ölfusi en það myndi hafa talsverða hagræðingu í för með sér fyrir Fangelsismálastofnun.
View ArticleSelfoss sigraði í spennuleik
Selfoss lagði ÍBV 21-20 í æsispennandi leik í 1. deild karla í handbolta á Selfossi í dag.
View ArticleTM vann Guðjónsmótið
Lið Tryggingamiðstöðvarinnar, TM Legends, sigraði Sjóvá í úrslitaleik Guðjónsmótsins, innanhússknattspyrnumóts sem haldið var í dag á Selfossi til minningar um Guðjón Ægi Sigurjónsson.
View ArticleSkoða hömlur á rjúpnaveiðar
Byggðaráð Bláskógabyggðar mun vinna tillögu um framtíðarfyrirkomulag veiðileyfa á jörðum sveitarfélagsins.
View ArticleAdelman í raðir Selfoss
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss hefur samið við Melanie Adelman um að leika með nýliðum Selfoss í Pepsi-deild kvenna í sumar.
View ArticleSjóvá opnar í Þorlákshöfn
Sjóvá hefur opnað umboð í Þorlákshöfn en umboðsmaður á svæðinu er Vignir Arnarson.
View ArticleNýr fimm ára samningur undirritaður
Búið er að undirrita nýjan fimm ára þjónustusamning milli Náttúrulækningafélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um þverfaglega endurhæfingu fyrir sjúkratryggða einstaklinga.
View ArticleLeikskólalist í Bónus
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í dag og af því tilefni hefur staðið yfir myndlistarsýning í Bónus á Selfoss með verkum barna á Jötunheimum.
View ArticleSigþór fjórfaldur Íslandsmeistari
Sigþór Helgason, Umf. Selfoss, vann fjóra Íslandsmeistaratitla á Unglingameistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem haldið var um helgina í Reykjavík.
View Article