Fjórir handteknir í stóru kókaínmáli
Í nótt voru þrír erlendir ríkisborgarar handteknir í orlofshúsi í Árnessýslu grunaðir um ólöglega vörslu og meðferð mikils magns meints kókaíns.
View ArticleFerðareglur rjúpnaskyttunnar
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun, föstudaginn 28. október og eru veiðar heimilaðar í alls níu daga á tímabilinu, sem lýkur 27. nóvember.
View ArticleSkaftárhreppur sparar með varmadælum
„Við greiðum 1,3 milljónir á mánuði í rafmagn,“ segir Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps, „og erum því að leita allra leiða við sparnað.“
View ArticleBaldur gaf leikborð á HSu
Baldur Róbertsson eigandi BR flutninga kom færandi hendi á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á dögunum og gaf HSu leikborð með áföstum leikföngum.
View ArticleGæsluvarðhalds krafist yfir mönnunum
Lögreglan á Selfossi hefur lagt fram kröfu um gæsluvarðhald í fjórar vikur yfir þremur Litháum sem handteknir voru í nótt vegna gruns um fíkniefnamisferli.
View ArticleÞægilegur sigur í Njarðvík
Þórsarar halda áfram að gera gott mót í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Þór lagði Njarðvík í kvöld á útivelli, 75-90.
View ArticleMýrdalsjökull skelfur áfram
Tveir jarðskjálftar 3,3 og 3,2 á Richter urðu í Mýrdalsjökli rétt fyrir kl. 18 í dag. Veðurstofan segir að skjálftavirknin sé svipuð nú og að undanförnu.
View ArticleDýrbít sleppt lausum
Sveitarstjórn Rangárþings ytra er ósátt við að lögregla og héraðsdýralæknir ákváðu nýlega að sleppa hundi, sem náðist eftir að hafa bitið lamb sem síðan þurfti að aflífa.
View ArticleAðstæður góðar í Landeyjahöfn
„Þetta hefur gengið vel. Aðstæður í Landeyjahöfn eru nokkuð góðar núna. Þar er ágætt dýpi og það er verið að dýpka.“
View ArticleStálu öllu víni af staðnum
Fimm ungmenni brutust inn í veitingahúsið Hafið bláa við Ölfusárósa á sjöunda tímanum í morgun og tóku þaðan allt það áfengi sem var að finna á staðnum.
View ArticleHelgi Haralds: Góð stefna en hvenær hefjast framkvæmdir?
Í markmiðssetningu Íslands 2020, er stefnt að því að Ísland verði fullgildur meðlimur í hópi norrænna velferðarsamfélaga þar sem félagslegt öryggi og jafnrétti íbúa verði tryggt.
View ArticleÞurfti að létta á sér - og þefaði uppi kannabis
Í nótt áttu lögreglumenn leið um uppsveitir Árnessýslu og voru með fíkniefnahundinn Buster með sér. Þeir hleyptu hundinum út til að létta á sér en þá tók Buster á rás!
View ArticleMinni virkjun kynnt
Páll Bjarnason, tæknifræðingur, kynnti hugmyndir að allt að 10 Mw rennslisvirkjun í Ölfusá á fundi framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar í vikunni.
View ArticleLaugdælir fá KR-b
Í dag var dregið á skrifstofu KKÍ í 64-liða úrslit Powerade-bikarkeppni karla.
View ArticleDæmdir í vikulangt gæsluvarðhald
Litháarnir fjórir sem handteknir voru með fíkniefni í sumarbústað í Árnessýslu í gær hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Þeir voru með í fórum sínum 375 grömm af kókaíni.
View ArticleLokaspretturinn dugði ekki
Selfyssingar töpuðu 29-32 gegn Víkingi í 1. deild karla í handbolta í gærkvöldi.
View ArticleSuðurstrandarvegur tilbúinn
Malbikunar-framkvæmdum á Suðurstrandarvegi lauk í gær og þar með er komið bundið slitlag frá Þorlákshöfn alla leið til Grindavíkur.
View ArticleTreyja Sævars seld á 270 þúsund
Keppnistreyja Sævars Þórs Gíslasonar seldist á 270 þúsund krónur á herrakvöldi knattspyrnudeildar Ungmennafélags Selfoss fór fram í Hvítahúsinu í kvöld.
View ArticleLeikurinn snerist í síðasta fjórðungnum
Leikur Hamars gegn Breiðablik í 1. deild karla í körfubolta var mjög kaflaskiptur. Hamar náði 17 stiga forskoti í fyrri hálfleik en tapaði að lokum með 10 stiga mun, 102-92.
View ArticleHveragerði lagði meistarana
Lið Hveragerðis lagði ríkjandi meistara Norðurþings, 74-61, í Útsvarsþætti kvöldsins í Ríkissjónvarpinu.
View Article